Forsíða
61.034 greinar á íslensku.
Diego Maradona
Diego Maradona var argentínskur knattspyrnumaður og er talinn einn besti leikmaður sögunnar. Hann vann fjölda titla með félagsliðum sínum í Argentínu, Spáni og Ítalíu, auk þess að leiða þjóð sína til sigurs á HM 1986. Árið 2000 voru Maradona og Brasilíumaðurinn Pelé útnefndir bestu knattspyrnumenn 20. aldar af Alþjóðaknattspyrnusambandinu. Á seinni hluta ferils síns átti Maradona við að etja ýmis vandamál sem tengdust ofneyslu eiturlyfja. Hann rataði ítrekað í fréttir vegna ummæla sinna eða skrautlegra uppátækja í seinni tíð. Maradona var síðast þjálfari argentínska félagsins Gimnasia de la Plata.
Vissir þú...

- … að Todor Zhívkov, leiðtogi Búlgaríu, varð árið 1970 fyrsti leiðtogi austantjaldsríkis sem kom í opinbera heimsókn til Íslands?
- … að Emma Thompson (sjá mynd) er eina manneskjan sem hefur unnið Óskarsverðlaun bæði sem leikari og sem handritshöfundur?
- … að yfirhjúkrunarkonan Jóhanna Knudsen var árið 1941 ráðin af stjórnvöldum til að rannsaka konur og stúlkur sem höfðu haft náin kynni við hermenn í ástandinu?
- … að Gettysborgarávarpið, ein frægasta ræða í sögu Bandaríkjanna, tók aðeins þrjár mínútur í flutningi en var upphaflega flutt beint á eftir vígsluræðu sem tók um tvær klukkustundir?
- … að Fæðing þjóðar, kvikmynd sem sýnir haturssamtökin Ku Klux Klan í hetjulegu ljósi, var fyrsta kvikmyndin sem var sýnd í Hvíta húsinu í Washington?
Fréttir

- 16. maí: Sveitarstjórnarkosningar fara fram á Íslandi. Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur flest sæti í borgarstjórn Reykjavíkur.
- 16. maí: Búlgaría vinnur Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2026 með laginu „Bangaranga“ eftir Dara (sjá mynd).
- 14. maí: Evika Siliņa, forsætisráðherra Lettlands, segir af sér vegna viðbragða stjórnarinnar við drónahernaði Úkraínumanna.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Borgarastyrjöldin í Súdan • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið • Stríð Ísraels og Hamas
Nýleg andlát: Aðalsteinn Bergdal (28. maí) • Ted Turner (6. maí)
3. júní
- 2018 - Yfir hundrað létu lífið þegar eldfjallið Volcán de Fuego gaus í Gvatemala.
- 2019 - Blóðbaðið í Kartúm: Yfir 100 mótmælendur voru drepnir þegar stjórnarhermenn og Janjaweed-hópar réðust á búðir mótmælenda í Kartúm, Súdan.
- 2019 - Donald Trump Bandaríkjaforseti hóf opinbera heimsókn sína til Bretlands.
- 2020 – SpaceX sendi 60 Starlink-gervihnetti á braut um jörðu. Heildarfjöldi Starlink-gervihnatta varð þá 482.
- 2020 – Vladimír Pútín lýsti yfir neyðarástandi þegar 20.000 lítrar af olíu láku út í ána Ambarnaja norðan heimskautsbaugs.
- 2025 - Forsetakosningar voru haldnar í Suður-Kóreu. Frjálslyndi frambjóðandinn, Lee Jae-myung, bar sigur af hólmi.
- 2025 - Endurbættur Laugardalsvöllur var opnaður þegar kvennalið Íslands mætti Frakklandi.
- 2025 - Hollenska ríkisstjórnin féll þegar Geert Wilders formaður Frelsisflokksins sagði sig úr henni.
Systurverkefni
|
|