Forsíða
Velkomin á Wikipediu,
frjálsa alfræðiritið sem allir geta unnið að.
61.180 greinar á íslensku.
Aung San Suu Kyi
Aung San Suu Kyi er stjórnmálamaður frá Mjanmar. Hún er fyrrum leiðtogi stjórnarmeirihlutans og leiðtogi Lýðræðisfylkingarinnar (NLD) í Mjanmar.
Árið 1990 vann flokkur hennar, NLD, 52% atkvæða og 80% sæta á landsþinginu. Fyrir kosningarnar var hún handtekin og sett í stofufangelsi. Henni var sleppt úr stofufangelsi 13. nóvember 2010, eftir 15 ára fangelsisvist yfir 21 árs tímabil. Á meðan hún var í stofufangelsi fékk hún Sakharov-verðlaunin 1990 og friðarverðlaun Nóbels 1991.
Í kosningunum 1. apríl 2012, þar sem kosið var um hluta þingsæta landsþingsins, var hún kosin í neðri deild þingsins fyrir fylkið Kawhmu. Flokkur hennar vann 43 af 45 lausum sætum í neðri deild þingsins. Í kosningunum 2015 vann NLD 85% atkvæða og 58% sæta á landsþinginu. Hún gat þó ekki sóst eftir forsetaembættinu því samkvæmt stjórnarskrá Búrma geta aðilar sem eiga ættingja með erlendan ríkisborgararétt ekki orðið forsetar landsins. Aung San Suu Kyi á tvo syni sem hafa báðir breskan ríkisborgararétt.
Aung San Suu Kyi varð ríkisstjórnarleiðtogi Mjanmar með titilinn „ríkisráðgjafi“ árið 2016. Eftir að hún komst til valda hafa mannréttindahópar gagnrýnt hana fyrir að beita sér ekki gegn ofsóknum mjanmarska hersins á Róhingjum.
Þann 1. febrúar árið 2021 setti mjanmarski herinn Aung San Suu Kyi í fangelsi og tók völdin í landinu í sínar hendur. Vísað var til meintra kosningasvika í þingkosningum sem fóru fram í nóvember árið áður, en þar hafði Lýðræðisfylkingin unnið yfirburðasigur.
Vissir þú...

- … að enski leikarinn Michael Caine heitir réttu nafni Maurice Micklewhite?
- … að þögla kvikmyndin Nosferatu (sjá mynd) var byggð á skáldsögunni Drakúla en nöfnum allra persónanna var breytt þar sem ekki tókst að fá leyfi höfundarréttarhafa fyrir kvikmyndinni?
- … að Kína er helsti framleiðandi vatnsmelóna í heiminum, með 64% af heildarframleiðslunni?
- … að fyrsta sjóorrusta seinni heimsstyrjaldarinnar var á milli Breta og Þjóðverja í óshólmum Río de la Plata í Suður-Ameríku árið 1939?
Fréttir

- 8. febrúar:
- Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn undir forystu Sanae Takaichi (sjá mynd) vinnur sigur í þingkosningum í Japan
- António José Seguro er kjörinn forseti Portúgals.
- 23. janúar: Ílíjana Jotova verður fyrsti kvenforseti Búlgaríu eftir afsögn Rúmens Radev.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Borgarastyrjöldin í Súdan • Mótmælin í Íran • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Stríð Ísraels og Hamas
Nýleg andlát: Baltasar Samper (13. janúar) • Sturla Böðvarsson (10. janúar)
10. febrúar
- 2005 - Karl Bretaprins tilkynnti trúlofun sína og Camillu Parker Bowles.
- 2005 - Norður-Kórea tilkynnti að landið byggi yfir kjarnavopnum.
- 2006 - Vetrarólympíuleikarnir 2006 hófust í Tórínó á Ítalíu.
- 2008 - Fyrsta Þjóðargersemi Suður-Kóreu, borgarhliðið Namdaemun í Seúl, brann.
- 2009 - Miðjuflokkur Tzipi Livni vann sigur í þingkosningum í Ísrael.
- 2015 - Malasíski stjórnarandstæðingurinn Anwar Ibrahim var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir saurlífi.
- 2020 - Íslenska tónskáldið Hildur Guðnadóttir hlaut Óskarsverðlaun fyrir tónlist í bandarísku kvikmyndinni Joker.
Systurverkefni
|
|